Hello folks,
Hérna verður hægt að fylgjast með húsbyggingu okkar að Seljuskógum 7, Akranesi.

Fyrsta myndin af lóðinni okkar, ef vel er rýnt í hvíta miðann á rafmagnskassanum sést heimilisfangið, Seljuskógar 7, klikkið á myndina til að stækka hana.
19. maí 2007
Framkvæmdir á lóðinni hófust loksins þ. 14 maí, eftir hádegi mættu gröfukallarnir galvaskir og byrjuðu að grafa, seint sama kvöld voru þeir nánast búnir að grafa 3 metra djúpa 400m2 holu, og á uppstigningardag (17 maí) var búið að fylla og þjappa ósköpin, ekki lengi að því sem lítið er.
Núna er ég að setja saman skúr fyrir verkfæri, rafmagnstöflu ofl. á meðan ég bíð eftir að RB komi og taki þjöppuróf, þeir koma vonandi á mánud. þá er bara eftir að fá útsetningu á sökkulinn, og er þá loksins hægt að byrja að slá upp.
Ég reikna með að Ingvar komi og verði með mér í einn eða tvo daga til að byrja með, á miðvikudag og/eða fimmtudag. Síðan fer þetta allt að gerast, hægt, jafnt og sígandi.
29. mars 2007
Jæja, loksins loksins komu bygginganefndar teikningarnar í hús í gærkvöldi. Þannig að í dag fór ég til byggingafulltrúa og sótti um byggingarleyfi, fæ sennilega svar í næstu viku og vona að það verði hægt að byrja grafa strax eftir páska og reikna ég þá með að byrja að slá upp fyrir sökklinum helgina 14-15 apríl..... ef allt fer eins og ég reikna með.
3. mars 2007
Í gær komu uppfærðar teikningar af húsinu, bæði útlits og grunnmynd, helsta breytingin er á nokkrum gluggum, og svo er núna komin rétt eldhúsinnréting inná grunnmyndina.
1. mars 2007
Í gærkvöldi fengum við útlitsteikningar í hendurnar, við fyrstu sýn litu þær vel út, þarf reyndar aðeins að breyta nokkrum gluggum, hérna er hægt að sjá útlits og grunnteikningar.
|
Sigrúnar Blog » Hérna segir Sigrún sögur af okkur, og hvað hún er að bralla.
Einars Blog » Hérna bullar Einar um allt og ekkert, þó aðalega ekkert.
|

Einar og Jóhannes skoða Akrafjallið af lóðinni okkar |
|